Ég ákvað nú að skrifa nokkrar línur í tilefni síðasta dags ársins en viðurkenni að ég hef ekki verið dugleg að halda þessari síðu við.

Mótmælendur hafa sett svip á árið og unnið hörðum höndum að því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að láta skoðanir sínar í ljós og fella ríkisstjórnina. Ég veit ekki hvað skal segja um þá fellingu, hver á að taka við?? Varla þeir sem nú eru að eyðileggja tæki og tól stöðvar tvö og hyndra útsendingu Kryddsíldar, ekki vil ég það fólk í stjórn, það eitt er víst. Ég efast um hver er hæfur til að taka við eftir allt sem á undan er gengið. Nú er bara að sjá hvað nýtt ár ber í skauti sér fyrir okkur almúgann því við getum minnst gert í raun þó svo við getum látið í okkur heyra og vonast til að á okkur sé hlustað. Skemmdarverk er ekki rétta leiðin að mínu mati, aldrei, og boðar ekki gott.
Við fjölskyldan höfum haft það þokkalegt um jólin, borðað góðan mat og glatt aðra með gjöfum og þegið kveðjur og gjafir frá vinum og ættingjum. Fjölskyldan er að stækka sem er gleðilegt og vonandi gerist það á allra næstu dögum. Það eru því miklar breytingar í vændum hér í Vanabyggðinni sem vonandi verða til ánægju og yndisauka þrátt fyrir efnahagsástand og stöðu þjóðarinnar á heimsmarkaði. Lífið mun vonandi halda áfram sinn vanagang þar sem skólaganga, íþróttir, atvinna og eðilegt fjölskyldulíf getur gengið óhyndrað.

Kveðja Drífa
4 ummæli:
Gleðilegt árið frænka mín...gangi ykkur allt í haginn á nýju ári.
Kveðja
Hlíðargötuliðið
Gleðilegt ár elsku frænka knús og kram Gunna og co
Elsku frænka og co.................
Innilegar nýárskveðjur frá TX og innnnnnilega til hamingju með væntanlega fjölgun kella mín -kem með eitthvað sætt í febrúar...en þetta verða viðbrigðin he he
kær kveðjan
frænka og co í kanalandi
Jæja þá er hún komin Ella litla í heiminn , innilega til hamingju öll hafið það sem allra best - bíð eftir mynd :)
Eygló, óli ætlar að koma á morgun að sjá litlu systur....... hann öfundar ekkert smá....
Kveðja frá okkur í Hafnarfirði
Skrifa ummæli