þriðjudagur, 7. október 2008

Þetta er nú ekki hægt lengur, þvílík leti. Ég hef ekki skrifað staf hér síðan í ágúst en það er ekki þar með sagt að ekkert sé í gangi í lífi okkar hér í Vanabyggðinni. Vinnan hófst eftir miðjan ágúst og skólarnir byrjuðu sem betur fer fljótlega á eftir, alltaf gott þegar allir eru á sama róli. Það hafa sem sagt allir hér verið á fullu við nám og störf, ekki veitir af að efla tekna og þjálfa hugann. Já tekjurnar duga skammt þessa dagana svo jákvæðni er eitthvað sem við hér á þessu heimili notum til að fleyta okkur áfram auk þess að láta okkur þykja vænt um hvort annað. En þar sem ég er búin að fá nóg af krepputali og lausnum sem að sjálfsögðu allir hafa í handraðanum læt ég fjármálaumræðu þjóðfélagsins liggja milli hluta.

Guðný er á kafi í skólanum og á vonandi eftir að plumma sig vel í vetur eins og hún hefur gert alla sína skólagöngu. Hún vinnur á Bautanum annað slagið og er farin að æfa Karate, já passið ykkur bara. Eygló er dugleg í skólanum og svo er brjálað að gera hjá henni í fimleikunum. Hún er komin í keppnishóp og fer líklegast til R. víkur í nóvember til að keppa ásamt hinum dömunum í I-2 en það mun vera hópurinn hennar. Ómar er enn í Byko og svo Vélsmiðjunni um helgar, ekki við drykkju og dans heldur við störf haha. Ég hef það bara gott þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Vinnan í Kiðagili er mjög skemmtileg enda frábært starfsfólk og svo barnahópur hjá okkur eins og alltaf. Ég steig stór skref í síðustu viku aftur inn í Háskólann á Akureyri og hyggst LOKSINS hefja meistaraprófsskrif. Já óskið mér til hamingju. TIL HAMINGJU DRÍFA :o) Það verður erfitt að byrja en líka skemmtilegt enda hef ég þörf fyrir að hefja áframhaldandi hugarþjálfun. Ég hef semsagt lagt fram einhverskonar hugmynd að efni í ritgerðina svo nú er verið að skoða hver getur orðið leiðsagnarkennarinn minn og þá fer boltinn að rúlla, vonandi hratt.

Jæja það er best að hætta þessu þvaðri og hver veit nema ég kíkki hingað inn aftur fyrir jól.
  • Njótum þess að vera til eins og okkur er unnt
  • látum ekki áhyggjur af heimsmálum þjaka sálina því hún er mikilvægari en aurar
  • notum hvern dag til að gleðja einhvern sem okkur þykir vænt um án þess að það kosti peninga.

Og að lokum af því ég nefndi jólin þá líður senn að jólum og mikilvægt að muna að hugurinn er það sem skiptir máli



Gangi ykkur allt í haginn
þangað til næst
Kveðja Drífa

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að skella þessu í framkvæmd. En eru engar fleiri jákvæðar fréttir af ykkur þarna í Vanabyggðinni, fannst eins og eitthvað vantaði :-)
Kveðja
Limar

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá þig
En hvaða næturbrölt er á þér Limar. Átt þú ekki að vera farin að sofa :o)

Bestu kveðjur
Drómar og co

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel með skrifin gott að heyra að sálin er ólöskuð og allir hafi það gott.
kv úr Hafnarfirðinum
Gréta

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá að það er enn líf á síðunni, var farin að sakna þess að sjá eitthvað.
Kv.B

Nafnlaus sagði...

Sæl frænka

Gott að sjá að þið hafið það gott var farin að sakna þín og til hamingju með nám.... vildi kvitta fyrir innlit og kær kveðja til allra þinna og foreldra

kærrrr kveðjan
Oddný í TX

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra frænka mín að þú ætlir að klára þetta hjá okkur hér í HA...gangi þér vel í því og öllu hinu!!!

Kveðja
Frænka þín á Hlíðargötunni

Nafnlaus sagði...

Hei frænkan og einhvern veginn finnst mér fólk vera gefa eitthvað í skin sem þú ert ekki að segja ha ha ha **?????? eða ekki á bloggi -en TIL HAMINGJU MEÐ PABBA Í DAG
17 OKTÓBER --ALLVEGGG að ná eftirlauna-aldrinum he he -- svo kveikjum við á kerti í minningu Lilju Þ. sem hefði orðið 87 ára í dag kellan mín.... en hafið það gotttt --
Kær kveðjan frá frænku og co.. í tx