þriðjudagur, 1. janúar 2008

Árið er liðið i a........s.....

Var að velta fyrir mér þessu með áramótin. Ákváðum að vera heima þetta árið enda flutt á nýjan vettvang, unglingur á heimilinu og ákváðum því að dvelja heima í nýju húsi að þessu sinni. Fengum góða gesti í kvöld, Þórunni, Rúnar og hluta af börnum. Áttum góða stund með góðum mat, drykk og góðri stemmu. Eftir að búið var að skjóta upp því litla sem keypt var (miðað við nágranna í Norðurbyggð eitthvað) fór að blása og blés hann og blés næstum húsinu um koll ( já næstum eins og i ævintýrinu um grísina þrjá). Að sjálfsögðu heyrðum við í slatta af fólki en gestirnir ákváðu samt að ferðast til síns heima þegar líða tók að morgni hvort sem um var að kenna komandi hvassviðri eða því að hér voru heimakærir ferðalangar á ferð sem langaði að komast í ból Bjarna ha ha.
Hvað sem á gekk eða mun ganga var þetta notalegt kvöld með góðri stemmu og skemmdi ekki ágætis áramótaskaup fyrir kvöldinu og hlógum við dátt yfir bröndurum sem á léttan hátt vöktu okkur til umhugsunar um liðið ár.
Takk fyrir ánægjulegar stundir á liðnu ári og sjáumst hress á því næsta.
Þangað til næst
Kveðja Drífa
En hver er tilgangur þess að blogga og fá ekkert comment. Spurning að kíkja á málþing bloggara þegar færi gefst til, blogg, blogg, blogg bloggi áramótabloggi.
Gaggalagúúú

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Drífa og fjölsk.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Vonandi hittumst við sem fyrst, allavegana stefni ég á að bruna norður þegar það fer aðeins að skána þetta veður :)
Bestu kveðjur
BÓB og co.

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og gömlu. þetta var eins hér í stuðlabergi enda leyfir prinsinn ekki mikið útstáelsi , en fengum okkur góðan mat sprengdum upp hér um átta með góðum grönnum og enduðum þar í sma rauðvíni. fórum síðan að horfa a skaupið sem var bara mjög fínt að mínu mati og besti brandarinn var " ekkert er ófáganlegt... Jón Ásgeir........" kveðja frá HHHH

Gunna sagði...

Elsku Drífa og fjölsylda
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla áramótaknús Gunna og co

Ég sjálf sagði...

Gjáararnir eru líka hressir á nýju ári....gleðilegt ár frænka mín....
Er svo ekki bara stemmari fyrir öðru ættarmóti fljótlega?????
Kv. úr Hlíðó
Eygló

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu, og takk fyrir jólakortið, endurgjeld á næsta ári. Ég týndi nefnilega kortunum frá í fyrra (ég styðst alltaf við kortin frá fyrra ári ásamt gömlum lista) og urðu jólakortin frá Ásbyrgi á Hauganesi óvenju fá þetta árið. Minnið er eitthvað farið að dala. EN hvað um það. Hafið það gott öllsömul, Kveðja Kolla

Nafnlaus sagði...

Sæl Kolla
Gaman að heyra frá þér og takk fyrir kveðjuna. Hér er allt gott að frétta. Erum búin að taka niður jólin og farin að takast á við nýja árið hér í Vanabyggðinni.
Sjáumst vonandi í bráð og hafið það sem allra best
Kveðja Drífa