Það var vindsperringur hér norðan heiða í dag sem var í sjálfu sér ágætt því þá gerði maður eitthvað af viti innan dyra. En burt séð frá húsverkum og öðrum verkjum :o) þá rakst ég á þessa skemmtilegu mynd á síðunni hennar Gunnlaugar frænku.Það er skemmst að segja frá því að þegar ég sá þessa ,mjög svo skemmtilegu, mynd þá datt mér við hjónin í hug en við erum einmitt á leiðinni utan í júlí.
Búin að hlæja? þá skulum við víkja að öðru.
Það hefur verið lítil hreyfing í bókum á náttborðinu hjá mér en ég viðurkenni reyndar að vera löngu búin að lesa þær bækur sem hér hafa verið skráðar í langan tíma. Ég skellti ágætri bók á náttborðið nú á dögunum reflective teaching eftir Andrew Pollard í þeirri von að hausinn á mér taki við sér hvað varðar lokaritgerð í meistaranáminu, það má alltaf reyna ekki satt
Ég rakst á frétt um mosaeld sem rekja má til sígarettustubbs, sorglegt það. En þar sem hvergi má reykja (og ég dauðfeginn að vera hætt sökum þessa) gæti farið svo að slysum af þessu tagi fjölgi þar sem reykingafólk dvelur nú utandyra mestan hluta frítíma síns til að svala þörf sinni, eitthvað verður undan að láta, eða hvað?

En svona án gríns,
drepið í sígarettunum á öruggum stað. Mér finnst alltaf leiðinlegt að sjá lítil, forvitin, börn tína upp sígarettustubba af götunni ojjjjjjj, og svo að lokum þá dettur mér laglína í hug
drepið í sígarettunum á öruggum stað. Mér finnst alltaf leiðinlegt að sjá lítil, forvitin, börn tína upp sígarettustubba af götunni ojjjjjjj, og svo að lokum þá dettur mér laglína í hug "af litlum neista verður oft mikið bál".
Þangað til næst
Kveðja Drífa
Þangað til næst
Kveðja Drífa