miðvikudagur, 18. mars 2009
Ekki allir á fésinu :o)
miðvikudagur, 21. janúar 2009
Með lögum skal land byggja...... Vér mótmælum allir
Mótmælum með öðrum aðferðum en drullukasti, sýnum smá þroska og kennum börnunum að slíkar aðferðir eru ekki réttlætanlegar og skila ekki árangri sem skyldi nema upp að vissu marki, og spurning hvort það er endilega til góðs.
Hvað skal gera veit ég ekki en allir vilja nýja ríkisstjórn og þá spyr ég hvaða fólk á að taka við, ekki veit ég það því miður annars myndi ég fús segja það. Það er fullt af færu fólki sem getur tekið við segja raddirnar en enginn segir hver það á að vera og hvernig skuli finna það fólk. Ég veit ekki hvort ég vil fá einhvern Pétur og einhvern Pál til að taka til í ruslakompunni sem fyllst hefur að undanförnu af hinum ýmsu brotamálum sökum stjórnleysis og eftirlitsleysi ríkisvaldsins í garð bankanna. Ástandið í þjóðfélaginu er skelfilegt og upp koma svik og prettir nær daglega sem tengjast glæpamönnum, ef svo má kalla þessa aðila, í fjármálageiranum og sér ekki fyrir endann á þessu sýnist mér. En hvað skal gera, já ég spyr. hvað skal gera??
mánudagur, 19. janúar 2009
Tíminn flýgur hratt....
þriðjudagur, 13. janúar 2009
Gleðilegt nýtt ár


Lífið hefur því undanfarna daga, eins og ber að skilja, snúist í kringum litlu prinsessuna auk þess sem lífið hefur haldið áfram sinn vanagang með skólagöngu og fimleikaiðkun Eyglóar og prófum hjá Guðný. Ómar er nú heima í fæðingarorlofi í nokkra daga meðan allt er að komast á rétt ról og prinsessan er að venjast okkur og veru sinni utan veggja móður sinnar haha, (þetta var mjög frumlegt). En allavega þá er allt gott að frétta af okkur og hafið það sem allra best á nýja árinu.Þangað til næst Kveðja Drífa.
miðvikudagur, 31. desember 2008
Síðasta blogg ársins 2008
Ég vil byrja á að óska öllum gleðilegrar hátíðar og vonandi hafa allir notið jólanna á sinn hátt með sínu sniði. Árið hefur verið erfitt og margir hafa þurft að breyta töluvert lífsvenjum sínum sem var kannski gott að vissu leiti. Við þurfum að skoða viðhorf okkar og lífsgildi og haga okkur eins og fólk. Ég veit að flestir hafa lifað samkvæmt efnum, en við getum gert miklu betur. Við þurfum ekki allt það sem við höfum veitt okkur undanfarin ár, það má margt fara betur hvað það varðar.
Nú er ég búin að bulla út í eitt og vil að lokum óska öllum gleðilegs nýss árs og vonandi verður sprengjum við slæmt ástand á brott og vöknum á morgun kát og hress til að takast á við komandi ár. Gangið hægt um gleðinnar dyr og eigið gott kvöld og komandi nýárs nótt.miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Latasti bloggari á veraldarvefnum?
Svona ykkur að segja þá ætlar hún Kristín Aðalsteinsdóttir að vera leiðsagnarkennarinn minn í meistaraprófsritgerinni og hittumst við einmitt í gær. Ég hef ákveðið viðfangsefni og nú er að leggjast yfir heimildir og rannsóknir sem snúa að viðfangsefninu. Þetta á svo allt eftir að skýrast þegar fram líða stundir, en ekki meira um það í bili enda allt á byrjunarstigi.
Nú er jólahátíðin að nálgast og ég farin að huga að undirbúningi enda gott að vera tímanlega á ferðinni hvað þetta varðar. Annars hef ég setið undanfarin kvöld og prjónað kjól á yngri dömuna og held ég að hann heppnist bara vel, virkilega smekklegur kjóll :o) svona ykkur að segja.En ef ég horfi út fyrir fjölskylduna þá er ég að verða þokkalega bit á ástandinu sem ríkir í heimi fjármálanna hér á landi og spyr mig hvernig hægt er að ganga svo langt í svikum og prettum. Hvers vegna þarf öll þjóðin að blæða fyrir sukk ákveðinnar prósentu þjóðarinnar. Ég tók ekki þátt í kaupæði þjóðarinnar og ofurfjárfestingum hvorki hér á landi né erlendis. Hlutabréf hef ég aldrei átt og gamblaði því ekki með slíkt, ég á ekki jeppa né tvo bíla, ekki sumarhús á Íslandi né erlendis, ekki fellihýsi, tjaldvagn, húsbíl né gamalt skátatjald. Fataskápurinn minn er eins tómur og hann hefur verið alla mína ævi, þ.e. aðeins flíkur sem ég þarf á að halda hanga þar, flestar keyptar í Hagkaup og sokkarnir í Rúmfó. Það hanga ekki málverk á veggjunum, húsgögnin koma úr öllum áttum og þá helst úr Rúmfó eða frá öðrum heimilum sem hafa endurnýjað búslóðina. Stimplarnir í passanum mínum eru ekki fleiri en tveir á síðustu 6 árum en þeir voru ánægjulegir. Hvers eigum við að gjalda segi ég nú bara. Jú ég asnaðist til að kaupa mér hús með erlendum lánum og..... Já svona er lífið og við borgum bara þegjandi og hljóðalaust okkar himinháu reikninga með bros á vor :o)
Til hamingju Obama, hristu nú upp í liðinu.
Þangað til næstKveðja Drífa
mánudagur, 20. október 2008
Kuldaboli bankar á dyr..... brrr....
Annars er lítið að gerast hér í Vanabyggðinni nema allir hressir og kátir eins og gengur og gerist. Brjálað að gera hjá Guðný og Aroni í skólanum en líka gaman að vera til. Ég sjálf bíð enn eftir að fá leiðsagnarkennara en það á víst að skýrast á næstu dögum. Hlakka til að fara að gera eitthvað af viti. Hef reyndar setið við prjónaskap að undanförnu og svo jólakortagerð sem er bara skemmtilegt. En nú ætla ég að fara að halla mér og segi bless
þangað til næst
Kveðja Drífa
þriðjudagur, 7. október 2008
.Guðný er á kafi í skólanum og á vonandi eftir að plumma sig vel í vetur eins og hún hefur gert alla sína skólagöngu. Hún vinnur á Bautanum annað slagið og er farin að æfa Karate, já passið ykkur bara. Eygló er dugleg í skólanum og svo er brjálað að gera hjá henni í fimleikunum. Hún er komin í keppnishóp og fer líklegast til R. víkur í nóvember til að keppa ásamt hinum dömunum í I-2 en það mun vera hópurinn hennar. Ómar er enn í Byko og svo Vélsmiðjunni um helgar, ekki við drykkju og dans heldur við störf haha. Ég hef það bara gott þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Vinnan í Kiðagili er mjög skemmtileg enda frábært starfsfólk og svo barnahópur hjá okkur eins og alltaf. Ég steig stór skref í síðustu viku aftur inn í Háskólann á Akureyri og hyggst LOKSINS hefja meistaraprófsskrif. Já óskið mér til hamingju. TIL HAMINGJU DRÍFA :o) Það verður erfitt að byrja en líka skemmtilegt enda hef ég þörf fyrir að hefja áframhaldandi hugarþjálfun. Ég hef semsagt lagt fram einhverskonar hugmynd að efni í ritgerðina svo nú er verið að skoða hver getur orðið leiðsagnarkennarinn minn og þá fer boltinn að rúlla, vonandi hratt.
- Njótum þess að vera til eins og okkur er unnt
- látum ekki áhyggjur af heimsmálum þjaka sálina því hún er mikilvægari en aurar
- notum hvern dag til að gleðja einhvern sem okkur þykir vænt um án þess að það kosti peninga.
Og að lokum af því ég nefndi jólin þá líður senn að jólum og mikilvægt að muna að hugurinn er það sem skiptir máli
Gangi ykkur allt í haginn
þangað til næst
Kveðja Drífa
þriðjudagur, 12. ágúst 2008
Blogg-leti
Annars áttum við bara notalegar stundir auk þess að skella okkur á Dalvík föstudagskvöldið. Við fórum á súpukvöldið sem var mjög skemmtilegt og margt um manninn. Á laugardeginum fór Björg heim til Grindavíkur með allt sitt hafurtask og við skelltum okkur á Fiskidaginn til að sjá herlegheitin. Við smökkuðum eitthvað af fiski, kíktum á markaðinn og Eygló skellti sér á hestbak og svo var haldið heim á leið. Þetta var fyrsta heimsókn mín á fiskidaginn og skemmtilegt hve margir leggja leið sína þangað. Skemmtilega fjölbreyttir fiskréttir voru í boði í miklu magni og gos og íspinnar flæddu um svæðið. Ég vil óska Júlla til hamingju með daginn, hann á heiður skilið fyrir áhugaverða og skemmtilega hátíð. Eitt fannst mér þó með ólíkindum. Þrátt fyrir augljós ruslakör um alla bryggju og fjölda starfsmanna sem sá um að tæma þau þá rataði rusl gestanna ekki alltaf rétta leið og mátti sjá pappadiska, servéttur, gosglös og sælgætisbréf víð og dreif um bryggjuna. Er ekki málið að við Íslendingar förum að ganga betur um. Ég myndi ekki nenna að bjóða fólki til veislu ef það henti leirtauinu og matarafgöngum á gólfið að lokinni veislu og færi svo heim án þess varla að þakka fyrir sig. Að lokum. Takk Dalvíkingar fyrir góðar móttökur og skemmtilega hátíð.sunnudagur, 3. ágúst 2008
Verslunarmannahelgin
Frá því ég bloggaði síðast höfum við fjölskyldan haft það gott í sólinni og hitanum og notið þess að vera til þó svo Guðný eyði mestum tíma á Bautanum í vinnu. Ég og Elfa vinkona skelltum okkur í fjallgöngu í vikunni og gengum á súlur. Við gátum ekki fengið betra veður og ekki hægt að fá betra útsýni þó svo hitinn hafi reyndar verið að stríða okkur aðeins. Við komumst samt heilar heim, óbrenndar.
meðan börnin fóru í Tívolí. Svo var notið blíðunnar á Bláu könnunni með kaffi og með því og ekki var verra að sólin fór að skína. Kvöldið í kvöld var ekki síðra. Við fórum á skemmtun í miðbænum þar sem Páll Óskar, Hljómsveitin Von, Sigga og Bryndís Ásmunds og fleiri skemmtu gestum. Þess má geta að 80´s er þema hátíðarinnar og mátti sjá skemmtilegan klæðnað og tóku hárgreiðslustofur í bænum að sér að greiða gestum og gangandi.Kveðja Drífa (Set inn myndir síðar)
miðvikudagur, 30. júlí 2008
Sólin, hitinn og lognið er hér, hvernig spyr ég.
Skemmtileg mynd af Eygló við Dettifoss
miðvikudagur, 16. júlí 2008
Hvar er sólin, lognið og hitinn???
gaman að hitta þau loksins. Guðný mín átti 17. ára afmæli þann dag og hefur nú fengið réttindi til að aka bifreið, til hamingju með afmælið elsku Guðný og til hamingju með bílprófið. Ómar á svo 35. ára afmæli á morgun eða í dag þar sem klukkan er komin langt yfir miðnætti, knús og kossar.
Í kvöld fórum við stórfjölskyldna í bíó og sáum Mamma mía. Ég fór á Mamma mía söngleikinná Broadway í New York fyrir tveimur árum sem var mjög skemmtilegt enda frábær lög sem maður getur ekki annað en raulað með. En snúum okkur aftur að myndinni. Þetta er fínasta mynd en ég gat ekki annað en skellt uppúr þegar Meryl Streep hóf upp raust sína og fékk hláturskast þegar hinn eini sanni James Bond eða Pierce Brosnan tók sig til og söng ástaróð, come on, þetta var nett hallærislegt, svona í alvöru, hugsið það aðeins. Þrátt fyrir ágæti myndarinnar og skoplega sjón þá held ég að hægt hafi verið að finna mun betri söng- og leikara í þessi hlutverk og þar með gera myndina mun skemmtilegri en ella.
Ætli við skellum okkur ekki út í Hrísey eitthvað um næstu helgi. Kristín vinkona á 40 ára afmæli á föstudag, stór áfangi og svo er hin árlega hátíð í eyjunni sem maður kíkir eitthvað á. En ætli það sé ekki best að hætta þessu rugli og skella sér í bælið og halda áfram að lesa "Á ég að gæta systur minnar" ,reyna svo að ná góðum svefni og vakna hress, segjum fyrir 10.
Þangað til næst
laugardagur, 5. júlí 2008
Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið :o)

sunnudagur, 29. júní 2008
Júní á enda brrr og kuldi og trekkur
mánudagur, 16. júní 2008
Það er að koma 17. júní
Um helgina skellti ég mér í gönguferð með Ferðafélagi Akureyrar. Þetta var tveggja daga ferð, siglt að látrum og komið sér fyrir í skálanum. Að því loknu var gengið að og upp Uxaskarð og svo gengið á Gjögurfjall þar sem við fengum geggja útsýni þó svo þokubakki hafi aðeins truflað útsýnið. Þegar allir höfðu fengið nægju sína af fjallasýn var haldið til baka í skálann og tók þessi ganga um 6 klukkustundir. Um kvöldið var kvöldvaka þar sem Gunnar Halldórs stjórnaði fjöldasöng og fólk reitti af sér brandara. Reyndar var þreyta að hrjá þennan 15 manna hóp og voru allir komnir í koju klukkan 22:00. Á degi tvö var vaknað klukkan 08:00, borðaður morgunverður og svo pakkað niður fyrir heimferðina. Haldið var að stað klukkan 09:15 og gengin látraströndin endilöng til Grenivíkur og tók sú ganga um 9 tíma, reyndar með þó nokkrum stoppum til að nærast og skoða útsýnið. Ferðin var frábær enda dásamlegt útsýni og skemmtilegur hópur sem þarna var á ferð. Það var þreyttur hópur sem lenti á Grenivík klukkan 18:00 og má segja að Grenivík hafi sjaldan verið eins fögur og þennan dag þegar við drösluðumst síðustu kílómetrana, en þetta mun hafa verið um 21 kílómetri sem arkaður var. Nú er 17 júní á morgun og ætla ég að taka það rólega í Hrísey og hlaða batteríin fyrir komandi vinnuviku.
sunnudagur, 1. júní 2008
Sjómannahelgin

Hér sit ég ein og rita þessi orð meðan Ómar er að vinna á Vélsmiðjunni og Guðný og Aron eru niðri að læra fyrir prófin sem eru í næstu viku. Ég hef verið að þvælast í tölvunni, hlusta á tónlist og lesa fréttir og leiðist það ekki. Gott að vera stundum einn með sjálfum sér og gera sama og ekki neitt. Ég rakst á skemmtilegt myndband með einum af mínum uppáhalds tónlistarmönnum:
http://www.youtube.com/watch?v=b_eUnxDE8YY&feature=related
Þangað til næst og gleðilega hátíð sjómenn og fjölskyldur þeirra
Kveðja Drífa
föstudagur, 30. maí 2008
fimmtudagur, 29. maí 2008
Skelfur jörð
mánudagur, 12. maí 2008
Helgin á enda...
Við ákváðum að vera heima hjá okkur á laugardaginn, aldrei þessu vant, þó svo Kaffihúsakórinn frá Vestmannaeyjum væri út í Hrísey með tónleika í Sæborg og Brekka væri auglýst opin fram á nótt :o) Við skelltum okkur aftur á móti út í eyju á sunnudeginum og sáum þá vegsummerki, á fólki, um næturopnun Brekku og vorum dauðfegin að hafa verið heima hjá okkur kvöldinu áður. Ég og Eygló fórum í húsvitjanir meðan Ómar fór á Brekku að horfa á einhvern mjög mikilvægan leik, ekki spyrja mig hvaða, og svo enduðum við hjá tengdó í grillveislu. Við vorum svo heppin að hitta Árna og Ólaf, litla, Þorstein en Ella var fjarri góðu gamni, á flækingu erlendis.
Hér er daman á hjólinu !
Alída flott í gallanum sínum, vel varin!
Smá vídeo af Eygló á Hjólinu
Þangað til næst
Kveðja Drífa
laugardagur, 10. maí 2008
Langt síðan síðast







